top of page

ADHD og fylgiraskanir

Þetta verkefni snérist um að útbúa ráðstefnu.

Fengum við að ráða um hvað ráðstefnan var en þemað var jafnrétti.
Ég valdi að fjalla um ADHD og fylgiraskanir, þar sem ég þekki vel til efnisins og langaði að vekja athygli á því máli.
Valdi bjarta liti og létt letur og vildi að ráðstefnan myndi vekja upp forvitni og sýna þessa röskun sem jákvæða frekar en eitthvað neikvætt.

logo.png

Hér er lógóið.
Lógóið hannaði ég með það í huga að vera með höfuðið í skýjunum eins og mér er oft lýst með þegar mitt ADHD er upp á sitt hæsta.  Hjarta er staðsett í skýinu og kemur aðeins út fyrir að neðan eins og elding því við einstaklingar með ADHD erum full af eldmóði og ástríðu.

Hér er brandbók
Brandbækur eru gerðar svo samstarfsaðilar og aðrir geti nálgast lógóið í öllum stærðum og útfærslum sem eru leyfilegar.
Hér kemur fram skölun, negatíft, rastað og það sem er ekki leyfilegt með lógóið sjálft.
Sum lógó hafa strangar reglur um að t.d. ekki megi nota það á svörtum grunni eða að það verði alltaf að vera í lit. Þess vegna er gott að geta haft brandbók til að sýna viðskiptavinum hvernig á að nota lógóið.

Brandbók-ADJ_Page_1
Brandbók-ADJ_Page_5
Brandbók-ADJ_Page_6
Brandbók-ADJ_Page_2
Brandbók-ADJ_Page_3
Brandbók-ADJ_Page_4
Brandbók-ADJ_Page_7
Brandbók-ADJ_Page_8

Hér er dagskráin.
Appelsínugulur var ríkjandi litur í nær öllum prentgripum. Mig finnst hann tákna gleði, von og umhyggju. 

dagskra_MOCKUP2.png

Hér er matseðillinn
Hann er hannaður út frá lógói ráðstefnunnar.
Hafði hann bjartan og litríkan.
Er mjög ánægð með útkomuna á matseðlinum og útfrá því komu hugmyndir um að nota lógóið á fylgihluti í þeirri mynd sem hún kemur hér. Sem sagt speglað lógó. 

matseðill.png
matseðillbak.png

Hér er auglýsing á skilti.
Og er hún í svipuðum dúr og annað í ráðstefnunni. 
Hér sést hoppandi fólk stútfullt af gleði sem á að spegla persónuleika okkar sem eru mað ADHD. Björt kát og full af orku.

STRÆTÓSKÝLI2.png

Hér er barmmerki.
Þetta hafði ég í öðrum lit en appelsínugulum bara svo lógó og texti myndi njóta sín betur.

Barmmerki_EÓ.png

Þetta er appið sem ég hannaði fyrir ráðstefnuna og segir frá helstu atriðum, staðsetningu og dagskrá.

Hér eru prentgripir ásamt aukahlutum.
Safn af prentgripum úr verkefninu 
Matseðill, dreifibréf, prentformur af dagskrá og auglýsing fyrir strætóskýli

bottom of page