top of page
Eydisweb14.png

Eydís Hjaltalín Ómarsdóttir

Ég er fædd 8. júní 1991 og uppalin í Hafnarfirði. Á rætur mínar að rekja til Keflavíkur en þar býr stór hluti fjölskyldunnar minnar sem mér finnst ég afar rík að eiga að. Hvatvísi, létt ringulreið, lítill sem enginn filter en að mestu leyti ljúf eru orð sem ég myndi nota til að lýsa sjálfri mér, ásamt því að vera ákveðin, hress og listræn. Áhugamálin mín eru sem dæmi að teikna, dansa, hugsa um plönturnar mínar, upplifa og læra nýja hluti og vera með mínum nánustu. Ég á það til að safna hlutum og á marga hluti sem hafa mikið tilfinningalegt gildi fyrir mig svo sem steina, gömul bréf, trjádrumba og plöntur. Eitt skipti rakst ég á hryggjalið úr hval þegar ég var í fjörugöngu með móður minni. Ég druslaði honum út í bíl og er hann núna til sýnis á pallinum í sumarbústað fjölskyldunnar.

Þetta lýsir hvatvísinni og ringulreiðinni sem býr innra með mér sem mér er samt búið að takast að beisla niður og nota á listrænan og skapandi hátt. Eftir langt námsferðalag fer nú loks að líða að lokum og útskrift nálgast óðfluga. Spennandi og krefjandi tímar hafa verið þemað seinustu mánuði. Mín námsleið byrjaði 2012 þar sem ég fór í áhugasviðgreiningu og eina sem kom út ur því var grafísk miðlun, svo eðlilega ákvað ég að gefa því tækifæri. Skráði mig í nám og fann mig vel í þessu námi. En lífið tók yfir og mér var ekki ætlað að útskrifast strax. Ég fór að vinna, síðan í annað nám hjá Mími og fór svolítið að leita að sjálfri mér. Eftir góða og langa sjálfsskoðun var ég tilbúin að ljúka náminu 2019. Sagði upp öruggu skrifstofustarfi og hóf nám að nýju. Fylltist strax af innblæstri og fann hvað ég hafði saknað þess að vera í skóla. Eftir þetta nám tekur jafnvel við áframhaldandi nám í ljósmyndun eða prentsmíði, kannski fer ég út fyrir landssteinana. Sjáum hvað setur.

bottom of page