top of page

Embla
Hér var verkefnið að búa til okkar tímarit.
Þetta var lokaverkefnið í áfanganum og viðamikið verkefni.
Ég sá um allt efni í blaðinu. Tók viðtöl, samdi texta, bjó til auglýsingar, valdi myndir og gerði þær tilbúnar fyrir tímaritið.
Forsíðuna hannaði ég líka og eru blómin teiknuð og máluð af mér.
Notaðist við blekpenna og vatnslitamálingu.
Stóra blómið er ég sjálf og hin tvö eru systur mínar tvær. Augun eru foreldrar mínir og í vinstra auga speglast veröldin sem er áminning um hvaðan þú komst og hvert þig langar að fara.
Hér er hægt að skoða tímaritið Emblu í heild sinni.
Ásamt Aski sem er sameiginlega tímaritið sem við nemendur í grafískri miðlun gáfum út.
Hérna fyrir þá sem vilja vita meira um pælinguna á bak við hönnun og umbrotið á tímaritinu.
Þá set ég verklýsinguna sem fylgdi verkefninu hér að neðan.
Hér eru prentformar.
Tímaritið er sett á svona forma til að gera það tilbúið fyrir prentun. Það er síðan brotið, skorið og heft í kjölinn.
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
|---|---|---|---|
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |

bottom of page









